Reykjavík Lights Hótel er vel staðsett miðsvæðis í höfuðborginni, alveg við Laugardalinn í Reykjavík og í göngufjarlægð frá Laugaveginum. Á hótelinu eru 105 herbergi, en líkt og hótelið sjálft eru þau hönnuð út frá gamla íslenska dagatalinu og er síbreytileika ljóss og birtu á Íslandi innblástur fyrir hönnunina. Útkoman er stílhrein herbergi í Skandínavískum stíl þar sem litaþema hvers herbergis vísar í ákveðinn dag í árinu.
Á jarðhæð hótelsins eru veitingastaðirnir Eldsmiðjan og Krúska.
Aðstaða á hótelinu
MorgunverðurMorgunverður er borin fram á sömu hæð og móttakan er á milli klukkan 07:00 - 10:00 alla daga.
Hótelbar
Barinn er staðsettur á sömu hæð og móttakan og er opinn alla daga frá klukkan 12:00 - 23:00.
Internet
Gestir hafa aðgang að gjaldfrjálsri internet tengingu í öllum rýmum hótelsins. Vinsamlegast nálgist aðgangsorð í móttöku til að fá aðgang.
BílastæðiGjaldfrjáls bílastæði eru fyrir framan hótelið auk þess sem gestir geta lagt bílum sínum í bílaskýli hótelsins.
Þjónusta- Móttaka opin 24/7
- Gjaldmiðlaskipti
- Bókunarþjónusta
- Töskugeymsla
- Fatahreinsun í boði alla virka daga
- Fax og ljósritunarþjónusta
- Póstkassi
- Gestir hafa gjaldfrjálsan aðgang að tölvum í gestamóttöku
- Öryggishólf er í gestamóttöku
Almennar upplýsingar- Reyklaust hótel
- Reykskynjarar í öllum rýmum
- Myrkratjöld í herbergjum
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Lyfta
Fríðindi
Með því að bóka beint hjá okkur fylgja eftirtalin fríðindi:
- Móttökudrykkur, einn á hvern gest.
- Aðgengi að hjólaleigunni okkar, háð framboði.
- Snemmbúin innritun inn á hótel, háð bókunarstöðu.
- Uppfærsla á herbergi, háð bókunarstöðu.
Innritun og útskráning
- Innritun er frá 15:00
- Útskráning er til 12:00 (hádegi)
Gisting fyrir börn
Við bjóðum öll börn velkomin á hótelið. Börn undir 12 ára gista frítt ef þau deila rúmi með foreldrum, að hámarki eitt barn í hverju herbergi.
Ungbarnarúm (0-3 ára) eru ókeypis og eru háð framboði. Vinsamlegast hafið samband við hótelið til að bæta ungbarnarúmi við bókunina þína.
Greiðslukort
Hótelið áskilur sér rétt til að taka frá heimild á greiðslukorti gests, áður en dvölin hefst.
Hafðu samband
Reykjavík Lights
Suðurlandsbraut 12,
108 Reykjavík,